Óvenju margir leikmenn taka nú út leikbann í næsta leik hjá Knattspyrnufélagi Fjallabyggðar. KF á þrjá leiki eftir á Íslandsmótinu og er liðið 5 stigum fyrir ofan fallsæti í deildinni. KF á eftir að leika við þrjú lið sem eru í efstu fjórum sætum deildarinnar.
Sóknarmaðurinn Brendan Koplin er í leikbanni vegna fjögurra gulra spjalda.
Miðjumaðurinn og þjálfarinn Daniel Kristiansen er einnig í leikbanni vegna fjögurra gulra spjalda. Friðrik Örn Ásgeirsson er einnig í leikbanni og Hilmar Símonarson vegna 7 gulra spjalda.
KF spilar gegn Hvíta Riddaranum á laugardaginn í Mosfellsbæ. Hvítir eru í 2. sæti deildarinnar og eru á mikilli siglingu í deildinni.
Í 21. umferðinni spilar KF sinn síðasta heimaleik gegn Reyni Sandgerði en liðið er í 4. sæti deildarinnar.
Í lokaumferðinni leikur KF útleik gegn Augnablik sem eru í 3. sæti deildarinnar og eru í stöðu til að fara upp um deild.
Allt verða þetta mjög erfiðir leikir, en KF liðið hefur verið þunnskipað í nokkrum leikjum í sumar og missti nokkra leikmenn úr liðinu í ágúst.
Í samstarfi við Siglufjarðar Apótek þá höfum við getað haldið úti öflugri umfjöllun um meistaraflokk KF undanfarin ár.
Á heimasíðu Siglufjarðar apóteks er fjölbreytt úrval af vörum og einnig hægt að panta lyf rafrænt.
