Fjórir afrískir flóttamenn hafa sest að í Hrísey í kjölfar samnings sem Akureyrarbær gerði við félags- og vinnumarkaðsráðuneytið um samræmda móttöku flóttafólks á þessu ári. Samþykkt var að sveitarfélagið taki á móti allt að 350 flóttamönnum sem geta auðgað samfélagið og víkkað sjóndeildarhring heimamanna.
Þetta er í fyrsta sinn sem Hríseyingar taka á móti flóttafólki. Nýju Hríseyingarnir eru Everest og Ivan frá Úganda, Micho frá Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó og Theobald frá Rúanda sem hafa beðið í um þrjú ár eftir að fá hér landvistarleyfi. Nú hefja þeir nýtt líf í Hrísey og fara að vinna hjá Hrísey Seafood á allra næstu dögum. Leigja þeir herbergi með aðstöðu á Brekku núna í sumar.
Fjórmenningarnir hafa hver sína sögu að segja og eiga að baki erfiða reynslu á flótta. Hríseyingar vilja taka vel á móti þessum nýju eyjarskeggjum, bjóða þá velkomna og sýna þeim hvernig samfélagið í Hrísey getur staðið saman og verið til staðar fyrir þá eins og aðra.