Hátt í sjötíu gestir mættu í fyrsta Fjölskyldutímann í Íþróttahöllinni á Akureyri síðasta sunnudag. Fjölskyldutímarnir eru verkefni á vegum Íþróttadeildar Akureyrarbæjar þar sem boðið er upp á aðstöðu og tíma fyrir börn á grunnskólaaldri til að eiga virka íþróttasamverustund með systkinum og forráðamönnum.
Tilgangurinn er að börn á grunnskólaaldri geti átt samverustund með forráðamönnum og systkinum í íþróttasal og prófað hinar ýmsar íþróttagreinar, leikfimiæfingar, leiki og annað það sem er í boði hverju sinni.
Tímarnir, sem verða á völdum sunnudögum fram í desember kl. 9:30-11:00, eru í umsjón íþróttafræðinga sem eru einnig kennarar í grunnskólum Akureyrarbæjar. Aðgangur er ókeypis.
Næstu tímar verða á sunnudögunum 13. október, 20. október, 27. október, 3. nóvember, 24. nóvember og 8. desember.