Rúmlega 40 börn og unglingar frá Skíðafélag Ólafsfjarðar tóku þátt í Andrésar Andarleikunum í ár. Þrátt fyrir erfiðar aðstæður til æfinga í vetur vantaði ekki upp á árangurinn. Fjölmargir foreldrar fylgdu hópnum og var góð stemning.

Fjögur börn unnu Andrésartitil, 5 unnu til silfurverðlauna og 9 til bronsverðlauna. Skíðafélag Ólafsfjarðar getur verið stolt með árangurinn eftir erfiðan vetur.

Fjölmörg börn og unglingar unnu einnig persónulega sigra.