Það var hátíðleg stund þegar jólaljósin voru tendruð á jólatréinu á Ráðhústorginu á Siglufirði í gær. Sandra Finnsdóttir flutti hugvekju og Tinna Hjaltadóttir og Guðmann Sveinsson sungu jólalög auk þess sem börn úr leikskólanum Leikskálum sungu jólalög. Þá tóku nokkrir jólasveinar forskot á sæluna og mættu til byggða til þess að hitta börnin. Fjölmargir bæjarbúar og gestir mættu og gengu saman í kringum jólatréð en gærdagurinn markaði upphaf aðventunnar.
Jólaljósin verða tendruð á jólatrénu í Ólafsfirði föstudaginn 5. desember þegar jólakvöldið verður haldið í miðbænum og hefst viðburðurinn kl. 19:30.
Myndir: Fjallabyggd.is
