Íbúar og gestir í Fjallabyggð kvöddu jólin undir kvöld í dag þriðjudaginn 6. janúar. Þrettándagleðin hófst með blysför frá Ráðhústorginu á Siglufirði þar sem álfakóngur og álfadrottning auk jólasveina fóru fremst í flokki.

Gengið var að þrettándabrennu við Suðurtanga á Siglufirði. Slökkvilið Fjallabyggðar og lögreglan fylgdu göngunni líkt og fyrri ár.

Myndir með fréttini koma frá Slökkviliði Fjallabyggðar.