Krónan og Skíðafélag Siglufjarðar Skíðaborg halda Stubbamót í dag, sunnudaginn 1. mars 2026. Mótið fer fram á Skíðasvæði Siglufjarðar í Skarðsdal og hófst snemma í morgun. 
Um er að ræða keppni fyrir iðkendur fædda 2017 og yngri.  Upphaflega stóð til að halda mótið í gær en var frestað vegna veðurs.
Færið á svæðinu er nýtroðinn harðpakkaður púðursnjór.