Upp úr hádegi í dag varð rof á öllu fjarskiptasambandi sem hafði talsverð áhrif á Sjúkrahúsið á Akureyri. Við þetta var ekki hægt að notast við samskipti í gegnum síma, net né Tetra- talsstöðvar í um 17 mínútur og Sjúkrahúsið því sambandslaust innan sem utan.
Viðbragðsáætlun vegna rofs á símkerfi var virkjuð á spítalanum en þar er gert ráð fyrir að Tetra kerfið sé notað verði rof á gsm sambandi.
Unnið er að frekari greiningu á áhrifum þessa atviks en ljóst er að bilunin hefði getað haft alvarlegar afleiðingar fyrir starfsemi SAk.
Bilunina mátti samkvæmt Mílu rekja til símstöðvar á Akureyri.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá viðbragðsstjórn sjúkrahússins.