Sveitarfélagið Fjallabyggð verður að innleysa flugskýli á flugvelli sem var lagður niður fyrir tíu árum. Þetta er samkvæmt dómi Hæstaréttar í dag.
Maðurinn sem stefndi sveitarfélaginu reisti flugskýli við Ólafsfjarðarflugvöll árið 1992 og gerði lóðaleigusamning við Ólafsfjarðarbæ til 75 ára árið 1993. Tæpum áratug síðar var flugvöllurinn afskráður og eftir að framkvæmdir hófust við Héðinsfjarðargögn var ekki lengur hægt að lenda þar. Eigandinn krafðist þess því að Fjallabyggð innleysti flugskýlið og greiddi sér tíu milljónir króna. Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði öllum kröfum mannsins 4. júlí í fyrra en Hæstiréttur sneri því í dag og fyrirskipaði sveitarfélaginu að innleysa flugskýlið.
heimild: Rúv.is