Fjallabyggð fékk þrjú tilboð í verkefni í þjóðveg í þéttbýli í Ólafsfirði, sem er þriðji áfangi verksins.  Kostnaðaráætlun í verkið var kr. 71.223.100 og bauð Bás 65,8 milljónir og áttu þeir lægsta boðið. Bás hefur staðist kröfur útboðsins og mun Fjallabyggð semja við fyrirtækið um verkið. Tvö tilboðanna voru undir kostnaðaráætlun og eitt tilboð töluvert yfir áætlun.

Eftirfarandi tilboð bárust í verkið:

Bás ehf kr. 65.809.983,- 92,4% af áætlun
Sölvi Sölva kr. 84.631.625,- 118,8% af áætlun
Smárinn ehf kr. 68.467.270,- 96,1% af áætlun