Fulltrúar Knattspyrnufélags Fjallabyggðar hafa upplýst Fjallabyggð að sátt sé við þá forgangsröðun að byggja knatthús til þess að bæta aðstöðumál KF í stað þess að setja gervigras á heilan völl. Þorfinna Þrastardóttir og Kristján Ragnar Ásgeirsson frá KF og Óskar Þórðarson fulltrúi UÍF hafa þegar farið yfir málið á fundi með fulltrúm Fjallabyggðar.
KF mun halda fund með félagsmönnum þriðjudaginn 2. september þar sem formleg afstaða félagsins verður tekin vegna breytinga á stefnumótun og framtíðarsýn íþróttamála 2023-2035.
Fjallabyggð mun kanna fjármögnunarmöguleika og útboð á byggingu knatthúss.
Þetta er gríðarlega spennandi verkefni fyrir iðkendur í knattspyrnu í Fjallabyggð og myndi tryggja heilsársæfingar í heimabyggð og hugsanlega einhverja aðra notkun á húsinu á vegum sveitarfélagsins. Ekkert hefur verið gert opinbert hvar þetta hús gæti verið byggð í Fjallabyggð.