Fjallabyggð hefur óskað eftir tilboðum í endurbætur á þaki Sundlaugar Siglufjarðar.Endurnýja skal núverandi kraftsperrur yfir sundlaugarsal og endurnýja þakklæðningu á öllu húsinu ásamt uppsetningu veggja í þakrými.
Verktími er frá 15. júní 2025 til 30. ágúst 2025.
Útboð er í gangi fyrir verkinu og er hægt að skila inn tilboðum til 27. maí.
Vonandi skila sér góð tilboð í verkið svo hægt verði að klára þetta verkefni í sumar.