Fimmtudaginn 7. maí kl. 17:00 mun Fjallabyggð kynna tillögur að skipulagsbreytingum á Leirutanga í sal á 2. hæð í ráðhúsi Fjallabyggðar á Siglufirði. Þar mun skipulagsráðgjafi kynna tillögurnar og sitja fyrir svörum varðandi skipulagstillögurnar og veita upplýsingar þeim sem þess óska.
Að kynningu lokinni og eftir umfjöllun skipulags- og umhverfisnefndar verða tillögurnar auglýstar með að minnsta kosti sex vikna athugasemdafresti, þar sem allir hafa tækifæri til að koma á framfæri ábendingum og athugasemdum.