OLYMPUS DIGITAL CAMERA
Bæjarráð Fjallabyggðar hefur samþykkt að ganga til viðræðna við ferðaþjónustufyrirtækið Viking Heliskiing um mögulega framtíðaruppbyggingu á flugvallarsvæðinu á Siglufirði og kaup á eignum Fjallabyggðar á svæðinu. Samræmast hugmyndir fyrirtækisins tillögum starfshóps Fjallabyggðar um framtíðaruppbyggingu flugvallarsvæðisins á Siglufirði frá árinu 2022.
Viking Heliskiing vill gera flugvallarsvæðið á Siglufirði að lykilinnviði í áframhaldandi uppbyggingu ferðaþjónustu á Tröllaskaga og í Fjallabyggð.