Fjallabyggð áætlar að tilboð í knatthús í Ólafsfirði verði opnuð þann 8.maí næstkomandi, en fjölmargar fyrirspurnir hafa verið um útboðið. Bæjarráð Fjallabyggðar hefur heimilað að í útboði verði heimilt að leggja fram frávikstilboð sem snúa að framkvæmdatíma, en nokkrir aðilar hafa óskað eftir að leggja fram frávikstilboð. Lengdur framkvæmdatími á því að reisa húsið hefur óveruleg áhrif á afhendingu þess fullbúnu og tilbúnu til notkunar.