Bæjarráð Fjallabyggðar hefur samþykkt tillögu um flöggun íslenska fánans við stofnanir Fjallabyggðar. Lagt er til að reglulegri flöggun við stofnanir Fjallabyggðar við andlát og útför íbúa verði hætt frá og með 1. janúar 2023. Frá og með þeim 1. janúar 2023 verður íslenska fánanum flaggað við stofnanir Fjallabyggðar á opinberum fánadögum.
Tillagan er til komin frá vinnuskjali deildarstjóra stjórnsýslu- og fjármála, til að samræma hefðir innan sveitarfélagsins, en misræmi hefur verið í þeim á milli bæjarkjarna.
Bæjarstjórn Fjallabyggðar mun taka endanlega ákvörðun í málinu á næsta fundi.