Bæjarráð Fjallabyggð hefur heimilað bæjarstjóra að framlengja samninga vegna dúntekju til 31. desember 2025. Um er að ræða samninga á skilgreindum dúntekjusvæðum 1-4 sem gilda til 11. maí 2025 auk samnings við fyrirtækið Icelandic Eider ehf. vegna dúntekju á Leirutanga sem rann út 31. desember 2024.