Bæjarráð Fjallabyggðar fagnar nýgerðum kjarasamningum á almennum vinnumarkaði.  “Þeir eru mikilvægt framlag til að stöðugleika verði náð í hagkerfinu og sérstaklega í rekstri sveitarfélaga.”, segir í fundargerð bæjarráðs Fjallabyggðar frá 26. mars.

Enn er eftir að semja um kjör við opinbera starfsmenn.

Fjallabyggð mun nú hefja endurskoðun á gjaldskrám sínum til samræmis við það samkomulag sem gert var í tengslum við nýgerða kjarasamninga.

Bæjarstjóra Fjallabyggðar hefur verið falið að koma með tillögu að uppfærðum gjaldskrám sem tengjast barnafjölskyldum og fólki í viðkvæmri stöðu þar sem hækkanir umfram 3,5% eru leiðréttar.

Fjallabyggð mun ekki skorast undan þátttöku í gjaldfrjálsum skólamáltíðum en telur óljóst á núverandi tímapunkti hvernig ríkisvaldið hyggst koma að fjármögnun og framkvæmd verkefnisins.