Fjallabyggð auglýsir laus til umsóknar fjölbreytt störf fyrir námsmenn. Ráðið er í störfin frá 1. júní til 31. júlí. Um er að ræða 5 störf sem unnin eru bæði í Ólafsfirði og á Siglufirði. Unnið verður m.a. að eftirfarandi verkefnum:
- Aðgengi fyrir alla -hellulögn og stígagerð.
- Átak í umferðaöryggi -götumerkingar.
- Skógrækt í Siglufirði, -stígagerð, sláttur og grisjun.
- Ágengar plöntur, -eyða ágengum plöntum.
Umsóknir berist á skrifstofur Fjallabyggðar fyrir 22. maí 2012, frekari upplýsingar veitir Valur Þór, umhverfisfulltrúi í síma 844 0220.