Fimmtán nemendur og fimm kennarar frá Finnlandi og Svíþjóð eru að koma til Fjallabyggðar í heimsókn í næstu viku og er það lokahluti Nordplus verkefnis Grunnskóla Fjallabyggðar. Dagskrá verður fyrir þennan hóp frá 22. september til 28. september. Hópurinn kemur til Fjallabyggðar á mánudaginn.
Hópurinn verður svo í Grunnskóla Fjallabyggðar á þriðjudaginn og vinna verkefni um Benjamín Dúfu. Þá verður heimsókn í Tjarnarborg og Síldarminjasafnið á dagskrá.
Á miðvikudag heimsækir hópurinn Pálshús og smíðakompuna í Ólafsfirði.
Á föstudag verður farið til Hríseyjar, þar verður farið í sund og gönguferð.
Hópurinn fer svo snemma morguns á sunnudag frá Fjallabyggð.