Ferðir ársins hjá Ferðafélagi Akureyrar kynntar í máli og myndum í Hömrum, litla salnum í Hofi, þann 9. febrúar kl. 20.00.
Frímann Guðmundsson, formaður ferðanefndar kynnir.
Fyrirlesari: Þóra Ellen Þórhallsdóttir grasafræðingur sem flytur erindi um Þjórsárver.
Kynning á útivistarvörum frá Horninu, Sportveri og Skíðaþjónustunni.
Aðgangseyrir kr. 1.000. Hægt verður að kaupa kaffi og meðlæti á veitingastaðnum í Hofi.