Ferðafélagið Trölli stendur fyrir krefjandi gönguferð frá Ytri-Á við Kleifar í Ólafsfirði og að Hvanndölum þar sem gist verður í eina nótt. Aðeins er pláss fyrir 12 manns í gönguna og kostar 25.000 kr. á hvern aðila. Gangan hefst kl. 10:00, laugardaginn 11. júlí.
Lýsing:
Gangan hefst við Ytri-Á Kleifar í Ólafsfirði, gengið inní Fossdal, svo er nokkuð krefjandi ganga uppá Hvanndalabjargið (625 m. hátt ), þaðan niður Gjánna ofan í Sýrdalinn og svo að Hvanndölum. Gist í skýlinu eða tjöldum. Áætlaður göngutími um 6-7 klst. Gengið til baka næsta dag yfir Víkurbyrðu, (670 m )ofan í Héðinsfjörð þar sem gangan endar. Athugið að takmörkuð skráning, alls 12 manns, útbúnaður, tjöld og matur (ekki innifalin),ferjað verður með bát deginum áður. Krefjandi ganga, verð 25.000 þús.