Ágætu íbúar Fjallabyggðar og aðrir velunnarar KF, nú er komið að hinni árlegu innheimtu félagsgjalda KF fyrir árið 2014.
Félagsgjöld eru mikilvægur þáttur í starfsemi félagsins og eru notuð til uppbyggingar á félaginu og í ýmis verkefni tengdu því. Það er því okkur mikilvægt að njóta áfram stuðnings ykkar.
Innheimtan fer þannig fram að þessu sinni að núverandi félagar fá senda kröfu í heimabankann, en félagsgjaldið að þessu sinni er 1.500 kr.
Þeir sem ekki fengu innheimtukröfu en vilja gerast félagsmenn í KF vinsamlegast hafið samband á kf@kfbolti.is eða í síma 898 7093.
Áfram KF!