Eyfirski safnadagurinn verður haldin í áttunda sinni laugardaginn 3. maí. Þema safnadagsins að þessu sinni er HANDVERK.
Viðburðurinn hóf göngu sína árið 2007 og hefur verið haldinn árlega síðan. Á þessum degi opna um 18 söfn og sýningar við Eyjafjörð undir heitinu Eyfirski safnadagurinn. Markmiðið er að vekja athygli á fjölda fróðlegra og forvitnilegra safna sem eru við Eyjafjörð.
Náttúrugripasafnið í Ólafsfirði og Síldarminjasafnið á Siglufirði taka þátt í Eyfirska safnadeginum og verður opið á milli kl. 13:00 – 17:00. Ókeypis aðgangur er að söfnunum.