Federico Ignacio Russo Anzola eða Fede hefur kvatt félaga sína í Knattspyrnufélagi Fjallabyggðar með pistli á samfélagsmiðlum. Þar þakkar hann stjórn félagsins og þeim sem vinna hjá félaginu fyrir alla hjálpina. Hann þakkar liðsfélögum og þjálfaranum sérstaklega.  Hann segir að þetta sé besti hópur sem hann hefur verið hluti af. Hann var velkominn og fann fyrir stuðningi sem gaf honum sjálfstraust til að tjá sig á vellinum.

Hann segir ákvörðunina hafa verið erfiða en hann óskar öllum velfarnaðar.

Federico kom til KF í vor og lék 11 leiki í deildinni en náði ekki að skora mark. Ekki kemur fram í hans tilkynningu hver næstu skref á ferlinum séu.  Ekki er komin tilkynning um félagskipti hans hjá KSÍ þegar þessi frétt er skrifuð.

Leikmaðurinn er 25 ára og ættaður frá Venusúela en einnig með ítalskan ríkisborgararétt.

Nú er ljóst að Federico samdi við Kormák/Hvöt sem leikur í 2. deild karla og er þar um miðja deild.