Um miðjan dag í dag, 8. febrúar, bárust lögreglunni á Norðurlandi vestra upplýsingar sem gáfu tilefni til að lögregla greip til aðgerða á Sauðárkróki til að tryggja allsherjarreglu. Við þær aðgerðir naut embættið aðstoðar embættis ríkislögreglustjóra og lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Aðgerðum lögreglu er lokið. Enginn var handtekinn vegna málsins og ekki er grunur um ætlaða refsiverða háttsemi.
Að gefnu tilefni skal tekið fram að ekki var um „umsátur“ að ræða og harmar embættið slíkan fréttaflutning.
Lögreglan á Norðurlandi vestra mun ekki upplýsa frekar um málið vegna eðlis þess og viðkvæmni.
Þetta kemur fram í tilkynningu á samfélagsmiðjum hjá Lögreglunni.