Slökkvilið Fjallabyggðar fékk í gær tilkynningu um eld í húsi við Eyrargötu á Siglufirði. Boðað var út á hæsta forgangi þar sem ekki var ljóst um umfang eldsins í fyrstu. Þeir sem voru á staðnum náðu að slökkva eldinn áður en slökkviliðið kom á vettvang.

Verkefni slökkviliðsmanna fólst því í að tryggja að engar glæður leyndust á bakvið klæðingu utanhúss, en eldurinn kom þar upp.