Slökkvilið Fjallabyggðar berst nú við eld í húsnæðinu við Óskarsgötu 7 á Siglufirði. Eldur er í þaki hússins miðað við þær myndir sem borist hafa af vettvangi. Í húsnæðinu starfar fyrirtækið Primex, en húsnæðið er við höfnina á Siglufirði.

Allt tiltækt slökkvilið í Fjallabyggð er á staðnum. Ljóst er á nýjum myndum að mikill eldur er í húsnæðinu.

Myndir af vettvangi eru aðsendar.