Samkomulag hefur náðst um að Vitinn Mathús eldi mat tímabundið fyrir viðskiptavini velferðarsviðs Akureyrarbæjar en heimsendur matur var í síðasta sinn afgreiddur frá Eldhúsi Akureyrar (Matsmiðjunni ehf) 28. október.

Stefnt var að því að veita órofna þjónustu frá og með 29. október síðastliðinum og verður staðan síðan metin á næstu dögum og fundin lausn til lengri tíma.

Velferðarsvið  Akureyrarbæjar býður þeim sem metnir hafa verið í þörf fyrir heimsendan mat að fá sendan hádegismat heim og hafa BSO leigubílar annast útkeyrslu matarbakkanna.

Stjórnendum og starfsfólki Vitans veitinga ehf. og BSO eru þökkuð skjót og góð viðbrögð. Reynt verður eins og mögulegt er að veita viðskiptavinum óskerta þjónustu en ljóst er að einhverjar breytingar verða gerðar á þessu fyrirkomulagi á næstu dögum og vikum þar til lausn er fundin til lengri tíma.