Kaffi Klara í Ólafsfirði verður eins árs um helgina. Kaffihúsið er það eina í Ólafsfirði og á efri hæðinni er Gistihús Jóa sem tekur 12-13 manns í gistingu. Húsnæðið er gamla pósthúsið í bæjarfélaginu. Staðurinn er einnig upplýsingamiðstöð ferðamanna í Ólafsfirði.
Eigendur Kaffi Klöru eru þau hjónin Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir og Helgi Jóhannsson. Mikilar endurbætur hafa verið gerðar á húsinu. Kaffihúsið var nefnt í höfuð móður Bjarkeyjar, Klöru sem vann alla sína tíð við slík störf.
Nánari upplýsingar á www.kaffiklara.is