Nú í vikunni hóf störf nýr starfsmaður hjá verkfræðistofunni EFLU á Siglufirði. Robin Andersson, sænskur samgönguverkfræðingur, fluttist nýlega til Siglufjarðar ásamt eiginkonu sinni Rut Jónsdóttur og tveimur börnum, en Rut er frá Siglufirði.

Áður starfaði Robin hjá sænsku Vegagerðinni í Gautaborg, Trafikverket, sem verkefnastjóri. Fyrir starfa á starfstöð EFLU á Siglufirði systkinin Arnar Þór Stefánsson, verkfræðingur, og Íris Stefánsdóttir, skipulagsfræðingur, og eru því nú þrír starfsmenn sem hafa þar aðstöðu.

Starfsstöð þeirra er í Regus skrifstofuhóteli sem staðsett á annarri hæð við Túngötu 3 á Siglufirði, fyrir ofan Arion banka. Starfssemi í Regus hefur verið í jöfnum vexti frá því að skrifstofan var opnuð á vormánuðum árið 2023 og hefur þar þróast blómlegt samfélag fólks sem vinnur störf óháð staðsetningu, bæði á eigin vegum sem og fyrir fyrirtæki og stofnanir um allt land. Aðstaða þar er öll með besta móti.

Ljóst er að mikil sóknarfæri liggja í því fyrir sveitafélag á stærð við Fjallabyggð að fyrirtæki sem geta haldið úti starfssemi óháð staðsetningu hasli sér völl í sveitarfélaginu.