Togarinn Vestri fékk veiðarfæri í skrúfuna í leiðinda veðri og þungum sjó norðan við Kolbeinsey síðasta föstudag. Togarinn Björgúlfur EA fór Vestra til aðstoðar og dró skipið inn á Siglufjörð. Þar tók björgunarskipið Sigurvin á móti Vestra og kom skipinu að bryggju í Siglufirði.
Áhöfn Sigurvins leysti verkefnið fagmannlega þó töluverður stærðarmunur sé á þessum skipum. Sýndi sig vel hversu öflug og fjölhæf nýju björgunarskip Landsbjargar eru.
Notast var við dróna Björgunarsveitarinnar Stráka til að leiðbeina Sigurvin síðasta spölin að bryggju. Bein útsending frá dróna um borð í Sigurvin enda útsýni lítið með svona stórt skip á síðunni. Hefur þessi tækni nýst vel og auðveldar störf áhafnar til muna þegar lagst er að bryggju.
Vel gert Strákar!.
Þetta kom fyrst fram í tilkynningu frá Björgunarsveitinni Strákum.
