Á næstu vikum verður maíspokum dreift á öll heimili á Akureyri en hvert heimili fær að kostnaðarlausu 100 poka á ári. Pokarnir eru ætlaðir til þess að safna lífrænum úrgangi frá heimilum. Þeir passa vel í grænu körfurnar, þangað sem allir matarafgangar og annar lífrænn úrgangur á að fara.
Maíspoka er einnig hægt að kaupa í helstu matvöruverslunum á Akureyri sem og hjá Gámaþjónustunni.