Dósaguttarnir í Fjallabyggð hafa afhent krökkunum í Knattspyrnufélagi Fjallabyggðar gjafir og barna- og unglingaráði KF veglega peningagjöf. Í gær mættu þeir þegar KF og KV voru að keppa á Ólafsfjarðarvelli og gáfu börnunum flísfóðraðan jakka, húfu og brúsa.
Eftir afhendinguna var grillað og krakkarnir fóru í leiki og svo að horfa á meistaraflokkinn spila.
Dósaguttarnir vilja einnig koma því á framfæri að þeir þiggi alltaf fleiri sjálfboðaliða í þetta óeigingjarna sjálfboðastarf.
Það voru L7 og Kjörbúðin sem stóðu að grillveislunni.
Frábærar gjafir til barnanna.





