Davíðshús á Akureyri er opið alla virka daga kl. 13 til 17. Davíðshús stendur við Bjarkarstíg 6, og gaman að geta þess að Davíð Stefánsson valdi nafnið á götuna.
Davíð Stefánsson lét byggja húsið og bjó þar 1944 til ’64. Í janúar 1965 var húsið fyrst opnað sem safn og hefur fengið að haldast óbreytt frá því sem var þegar skáldið bjó þar. Íbúð Davíðs á aðalhæð hússins er sérlega smekkleg, prýdd listaverkum og mörgum fágætum bókum, en Davíð var bókavörður og ástríðufullur bókasafnari. Á neðri hæð er íbúð sem leigð er út til fræðimanna, skálda og rithöfunda til skemmri tíma.

Á fimmtudögum er boðið upp á dagskrá þar sem farið er yfir ákveðna þætti í lífi og list Davíðs, lesin ljóð og stundum sungin, gluggað í önnur ritverk og bréf Davíðs, sagðar sögur og hlýtt á upptökur, þar sem skáldið sjálft fer með ljóð og aðra texta.

Fimmtudaginn 21. júlí verður fjallað um Rödd konunnar í ljóðum Davíðs. Það er Valgerður H. Bjarnadóttir, húsfreyja í Davíðshúsi sem sér um dagskrána.

Fimmtudagsviðburðirnir hafa nú öðlast ákveðinn sess og fastagestum fjölgar, svo vissara er að mæta tímanlega til að tryggja sér sæti. Einnig er gott að ganga ögn um húsið og anda að sér fegurðinni áður en dagskráin hefst.

Vakin er athygli á því að ekki er hægt að skoða húsið á meðan á dagskrá stendur, þ.e. frá kl. 16 á fimmtudögum.

13692634_1205574039495034_3251532154322593480_n
Davíðshús á Akureyri

13726562_1205574102828361_5257126294474641333_n