Hvoll við Karlsrauðatorg 7 á Dalvík er nú komið á sölu. Hvoll hefur verið notað sem Byggðasafn í Dalvíkurbyggð undanfarin ár en sveitarfélagið eignaðist húsið ár 1987. Húsið er um 250 fermetrar, tvær hæðir og ris. Jón E. Stefánsson og kona hans Fanney Bergsdóttir byggðu húsið 1930.
Ásett verð er nú 49,9 milljónir og er Hvammur fasteignasala með húsið í einkasölu. Húsnæðið er laust til afhendingar við kaupsamning.
Eignin þarfnast endurbóta að innan sem utan.