Dalvíkurbyggð hefur ákveðið að endurskoða alla samninga um beiti- og ræktunarlönd og segja upp öllum óformlegum samningum við einstaklinga frá og með 25. janúar næstkomandi. Þeir sem telja sig þurfa á beiti eða ræktunarlöndum að halda er bent á að hafa samband sviðstjóra umhverfis- og tæknisviðs Dalvíkurbyggðar fyrir 5. febrúar næstkomandi.  Staðfesta þarf búfjárleyfi og sýna fram á gilda ábyrgðartryggingu fyrir þann fjölda gripa sem leyfið er gefið út fyrir.