Dalvík/Reynir mætti Hetti/Huginn á Dalvíkurvelli í dag í 3. umferð Íslandsmótsins í 2. deild karla. Bæði lið voru aðeins með eitt stig eftir fyrstu tvær umferðirnar. Borja Laguna var á bekknum, en hann hefur ekki leikið síðustu leiki með liðinu.

Heimamenn gáfu allt í leikinn og uppskáru. Liðið lék vel og kom fyrsta mark leiksins á 29. mínútu þegar Sindri Sigurðarson skoraði.  Áki Sölvason skoraði skömmu síðar, eða á 37. mínútu og kom D/R í 2-0. Martim Cardoso skoraði svo í uppbótartíma og var því D/R í góðri stöðu þegar dómarinn flautaði til hálfleiks.

Sævar Þór Fylksson og Borja Laguna komu inná um miðjan síðari hálfleik. Í uppbótartíma skoraði Remi Emeriau og kom heimamönnum í 4-0 sem urðu lokatölur leiksins.

Frábær leikur hjá D/R og stórsigur.