Dalvík/Reynir og Þróttur Vogum mættust á Vogaídýfuvellinum í Vogum á Vatnsleysuströnd í gær í 2. umferð Íslandsmótsins í meistaraflokki karla. Þróttur vann Kára á útivelli í 1. umferð Íslandsmótsins í 2. deild karla en Dalvík/Reynir gerði jafntefli við Hauka. Hjá D/R var Gunnlaugur Rafn Ingvarsson í leikbanni í þessum leik. Þróttur Vogum er með nýjan þjálfara en Auðunn Helgason er á sínu fyrsta tímabili með liðið og í vörninni er sonur hans, Auðun Gauti Auðunsson sem lék með KF í fyrra.
Það voru heimamenn sem skoruðu fyrsta mark leiksins á 17. mínútu og var að varnarmaðurinn Auðunn Gauti Auðunsson sem það gerði. Hans fyrsta mark fyrir félagið, en hann er á sinni fyrstu leiktíð með Þrótti. Heimamenn voru yfir 1-0 í hálfleik.
Þjálfari D/R gerði skiptingu á 65. mínútu þegar Hjörtur Freyr og Sævar Þór komu inná fyrir Sindra og Rúnar Helga. Þrjár aðra skiptingar voru gerðar hjá D/R, en það var ekki nóg til þess að jafna leikinn.
Lokatölur urðu 1-0 fyrir heimamenn.
Næsti leikur D/R er gegn Hetti/Huginn, föstudaginn 16. maí kl. 18:00 á Dalvíkurvelli.

