Dalvík/Reynir styrkti liðið núna á síðustu dögum félagsskiptagluggans en liðið leikur í 3. deildinni í sumar. Félagið fékk til sín annan erlendan leikmann og sterkan sóknarmann á láni út leiktíðina.

Gunnar Örvar Stefánsson er stór og stæðilegur sóknarmaður sem kemur á lánssamningi frá KA. Hann er fæddur árið 1994 og hefur leikið 148 leiki hér á landi með KA, Þór og Magna og hefur skorað í þeim 48 mörk.

Aaron Ekumah er er ungur varnarmaður sem er fæddur árið 2000, er uppalinn í Norwich en hann hefur einnig leikið í neðri deildum á Englandi.

Pálmi farinn

Pálmi Heiðmann Birgisson hefur gert félagskipti frá Dalvík/Reyni til Samherja. Félagskiptin voru gerð núna í lok félagsskiptagluggans. Pálmi lék 72 leiki í deild og bikar með Dalvík og skoraði 15 mörk. Þá lék hann 20 leiki í deildarbikar og skoraði 4 mörk fyrir Dalvík. Hann lék 8 leiki á síðustu leiktíð og skoraði 1 mark.