Dalvík/Reynir heimsótti Augnablik í B-úrslitakeppni í 2. deild kvenna sem nú er hafin. Leikurinn fór fram á Fífuvelli í Kópavogi. Augnablik hafði unnið fyrri leik liðanna í sumar stórt, 5-1 og var búist við erfiðum leik, en liðin voru með svipaðan árangur í deildinni fram til þessa.

Heimakonur skoruðu strax á 7. mínútu. Erika Egilsdóttir jafnaði fyrir D/R á 32. mínútu og var staðan 1-1 í hálfleik.

Bæði lið gerðu nokkrar skiptingar um miðjan síðari hálfleik. Nokkru síðar komst Augnablik aftur yfir með marki á 71. mínútu, staðan 2-1.

D/R liðið barðist áfram og jöfnuðu á 79. mínútu með marki frá Unu Hlynsdóttur, sem hafði komið inná sem varamaður á 62. mínútu.

Þjálfari D/R gerði þrefalda skiptingu þegar um 5 mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma, auk uppbótartíma.

D/R stelpurnar náðu inn sigurmarki á 90. mínútu þegar Iðunn Rán Gunnarsdóttir skoraði.

Lokatölur 2-3.