Dalvík/Reynir og Sindri á Hornafirði mættust í 2. deild kvenna á Dalvíkurvelli í dag.

Aníta Ingvarsdóttir skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Dalvík/Reyni á 17. mínútu, hennar 5 mark í deildinni í sumar. Staðan var 1-0 í hálfleik, en tveir leikmenn Sindra náðu sér í gult spjald í fyrri hálfleik.

Gestirnir jöfnuðu metin á 57. mínútu og var staðan 1-1 þegar rúmur hálftími var eftir.

Fleiri mörk voru ekki skoruð og voru lokatölur því 1-1.

D/R er í 5. sæti eftir 10 leiki og eru með 11 stig. Önnur lið hafa leikið 7 til 10 leiki.