Dalvík/Reynir og KFG mættust í 19. umferð Íslandsmótsins í knattspyrnu í 2. deild karla. Leikið var á Samsungvellinum í Garðabæ. KFG var rétt fyrir ofan fallsæti deildarinnar og þurfti sárlega á stigum að halda eftir tvo tapleiki í röð. D/R þurfti ekkert nema sigur til að minnka bilið á efstu liðin í toppbaráttunni. D/R vann fyrri leik liðanna í sumar 2-1.
Eftir tvo tapleiki í röð mættu strákarnir frá Dalvík grimmir til leiks. Ekkert mark var skoraði í fyrri hálfleik og var því jafnt 0-0. KFG gerði eina skiptingu strax í hálfleik en fyrsta skipting D/R kom á 58. mínútu þegar Aron Sverrisson kom inná fyrir Alex Mána Garðarsson.
Á 60. mínútu brutu heimamenn ísinn og kom fyrsta markið, Elvar Máni Guðmundsson gerði markið og var staðan orðin 1-0. Þjálfari D/R gerði fljótlega tvær skiptingar og kom Sævar Fylkisson og Bjarmi Óskarsson útaf fyrir Hjört Ævarsson og Tómas Þórðarson.
KFG gerði þrefalda skiptingu á 72. mínútu og voru með ferska menn inna í baráttunni fyrir lokakafla leiksins.
Á 83. mínútu jafnaði D/R leikinn þegar Áki Sölvason skoraði sitt 7. mark í deildinni í sumar. Staðan 1-1 og enn var tími fyrir sigumark.
Heimamenn gerðu eina skiptingu á lokamínútunni og var nokkrum mínútum bætt við leiktímann. Lokatölur urðu 1-1 og á D/R næst leik við KFA.
Dalvík/Reynir er nú 5 stigum frá 2.-3. sæti deildarinnar.
