Íslandsmótið í 2. deild karla er farið af stað. Dalvík/Reynir mætti Haukum á Dalvíkurvelli í 1. umferð.
Dalvík/Reynir stillti upp sterku liði, en Borja Laguna, Þröstur Jónasson og Viktor Daði voru ekki með en voru liðstjórar á bekknum. Líklega einhver smá meiðsli í gangi hjá þeim.
Haukar voru í 2. deildinni í fyrra og enduðu í 6. sæti eða um miðja deild.
Gestirnir byrjuðu vel og skoruðu strax á 3. mínútu. Heimamenn jöfnuðu leikinn undir lok fyrri hálfleiks þegar Miguel Concalves skoraði og jafnaði leikinn og var staðan jöfn 1-1 í hálfleik.
Þjálfari D/R gerði eina skiptingu í upphafi síðari hálfleiks þegar Aron Máni Sverrisson kom útáf fyrir Alex Mána Garðarsson.
Haukar gerðu þrefalda skiptingu á 61. mínútu og eina skiptingu á 72. mínútu.
Hjá D/R kom Sævar Þór inná á 78. mínútu en hann kom til liðsins frá KF fyrir tímabilið.
Dalvík/Reynir missti leikmann af velli þegar aðeins uppbótartími var eftir, en Gunnlaugur Ingvarsson fékk sitt annað gula spjald og lék D/R síðustu mínútur leiksins manni færri. Það kom ekki af sök og endaði leikurinn 1-1.