Ljóðasetur Íslands stendur við Túngötu 5 á Siglufirði. Þar er dagskrá alla daga á sumrin kl. 16:00. Þar stendur nú yfir sýning á ljóðabókum og ýmsu efni frá skáldum og hagyrðingum sem tengjast Siglufirði.

Dagskrá yfir Síldarævintýrið:

  • Föstudagur 29. júlí – Tóti trúbador leikur eigin lög við ljóð ýmissa skálda.
  • Laugardagur 30. júlí – Páll Helgason (Siglfirðingur og fyrrum íslenskukennari) flytur limrur sínar og fleira gott.
  • Sunnudagur 31. júlí – Lesið, sungið og kveðið úr verkum skálda frá Siglufirði og Fljótum.

Endilega lítið inn og njótið – Enginn aðgangseyrir.

Ljóðasetur