Ljóðasetrið á Siglufirði mun taka þátt í hátíðarhöldum í Fjallabyggð á 17. júní. Opið verður frá 15 – 17 og kl. 16 verður viðburður þar sem forstöðumaður setursins mun flytja lög og ljóð um Siglufjörð eða eftir Siglfirðinga.
Við sögu koma m.a. ljóð eftir Pál Helgason, Sigurbjörgu Hjálmarsdóttur, Sverri Pál Erlendsson, Albert Einarsson, Hannes Jónasson, Ingólf Jónsson frá Prestsbakka, Ólaf Ragnarsson og Guðlaug Sigurðsson.
Enginn aðgangseyrir og heitt á könnunni.