Byrjendanámskeið 18 ára

Golfklúbbur Ólafsfjarðar auglýsir, byrjendanámskeið í golfi fyrir 18 ára og eldri.

4 skipti 1 klst í senn samtals 4 klst. Námskeiðið fer fram á Skeggjabrekkuvelli Ólafsfirði.

Kennt verður dagana:

  • Miðvikudaginn 6. júní
  • Fimmtudaginn 7. júní
  • Mánudaginn 12. júní
  • Þriðjudaginn 13. júní

Farið verður yfir grunnatriði golfsins, golfsveifluna, vippin, púttin og helstu golfreglurnar.

Tímasetning námskeiðs skýrist nánar, fer eftir fjölda, en við reiknum með að byrja með 1. Hóp kl. 17:30

Kennari verður Heiðar Davíð Bragason, PGA kennari, og honum til aðstoðar Sigurbjörn Þorgeirsson.

Námskeiðsgjald kr. 6000,-

Nauðsynlegt er að skrá sig í síðasta lagi 4. júní (mánudagur) svo hægt sé að raða niður í hópa
Upplýsingar og skráning gefur Rósa í síma 863-0240 eða netfangið golfkl@simnet.is