Brynja Baldursdóttir myndlistarmaður hefur verið útnefnd Bæjarlistamaður Fjallabyggðar 2023. Þetta kemur fram í frétt á vef Fjallabyggðar.
Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar samþykkti, á fundi sínum fimmtudaginn 3. nóvember 2022, að útnefna Brynju Baldursdóttur sem Bæjarlistamann Fjallabyggðar 2023.
Brynja Baldursdóttir er myndlistarmaður og grafískur hönnuður, fædd 1964 og búsett á Siglufirði. Brynja stundaði nám við Myndlista- og handíðaskólann á árunum 1982-1986 og er hún með mastersgráðu frá Royal College of Art og stundaði þar einnig doktorsnám.
Hún hefur sýnt víða hér heima og erlendis og eru hennar helstu listform bóklist og lágmyndir.
Eftir Brynju liggur fjöldi bókverka, bæði bóklistaverk og hannaðar bækur. Brynja hefur unnið til ýmissa verðlauna fyrir grafíska bókahönnun ásamt því að vera tilnefnd til Menningarverðlauna DV 1993 fyrir bóklist.
Fjölmargar tilnefningar bárust og þakkar markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar í ár.
Bæjarlistamaður Fjallabyggðar 2023, verður útnefndur við hátíðlega athöfn í febrúar nk. og verður athöfnin auglýst þegar nær dregur. Við sama tilefni verða afhentir menningarstyrkir Fjallabyggðar fyrir árið 2023.
Texti og mynd: Fjallabyggð.is