Frá og með 1. maí breytist opnunartími í afgreiðslu sparisjóðsins á Grenivík og verður framvegis opið á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 10-16.
Auk afgreiðslna sparisjóðsins á Akureyri og Grenivík er einnig hægt að afgreiða erindi í gegnum síma, tölvupóst, á heimasíðu í appi og hraðbanka.
- síma 460-9400
- tölvupóst spsh@spsh.is
- örugg samskipti á heimasíðu spsh.is
- heimabanka og app
- hraðbanka í Hofi Akureyri og í Jónsabúð Grenivík
Sparisjóður Höfðhverfinga var stofnaður 1. janúar 1879 er hann elsta starfandi fjármálastofnun í landinu. Eins og gefur að skilja hefur starfsemi sjóðsins breyst verulega á þessum tíma. Miklar breytingar urðu á starfsemi hans árið 1972 þegar sjóðurinn fór að bjóða upp á tékkareikningaviðskipti. Í dag er Sparisjóður Höfðhverfinga þjónustufyrirtæki á fjármálasviði sem veitir alla almenna banka- og fjármálaþjónustu.
Árið 1981 flutti sparisjóðurinn í eigið húsnæði og árið 1999 urðu aftur miklar breytingar þegar sjóðurinn keypti og flutti í húsnæði Íslandspósts hf. Um mitt ár 2000 tók sparisjóðurinn við rekstri póstafgreiðslunnar og sinnti henni til janúarloka árið 2005.
Bæði fyrirtæki og einstaklingar eru í viðskiptum við sjóðinn og oftar en ekki eru þeir annaðhvort búsettir á nánasta starfssvæði sjóðsins eða tengjast því með einum eða öðrum hætti.