Skipulagning skólastarfs í Grunnskóla Fjallabyggðar fyrir næsta skólaár er langt komin. Töluverðar breytingar eru fyrirsjáanlegar.  Skólahúsið við Tjarnarstíg verður tekið í notkun eftir viðbyggingu og endurbætur og þar sameinast miðstigsbekkir skólans þ.e. 5., 6. og 7.bekkir.

Skólaakstur eykst á næsta skólaári í ljósi þess að nemendum 5., 6. og 7. bekkja verður ekið frá Siglufirði til Ólafsfjarðar.  Áfram verður nemendum unglingadeildar ekið frá Ólafsfirði kl. 7.35 til Siglufjarðar og til baka að skóladegi loknum.

Nemendum 5., 6. og 7. bekkja Siglufirði  verður ekið  kl. 8 frá skólahúsinu við Norðurgötu til Ólafsfjarðar og til baka að skóladegi loknum.  Kennsla þessara bekkjadeilda hefst kl. 8.40. Nemendur í 5., 6. og 7. bekk sem búsettir eru í Ólafsfirði geta mætt kl. 8 og átt athvarf í skólanum þar til kennsla hefst.

Kennsla bekkjardeilda  Grunnskóla Fjallabyggðar á næsta skólaári verður eftirfarandi:

  • 1.-2. bekkur skólahúsinu við Norðurgötu, Siglufirði
  • Umsjónarkennari: Mundína Bjarnadóttir
  • 3.-4. bekkur skólahúsinu við Norðurgötu, Siglufirði
  • Umsjónarkennari: Sigríður Karlsdóttir
  • 1.-2. bekkur skólahúsinu við Tjarnarstíg, Ólafsfirði
  • Umsjónarkennari: Ólöf Kristín Ásgeirsdóttir
  • 3.-4. bekkur skólahúsinu við Tjarnarstíg, Ólafsfirði
  • Umsjónarkennari: Lísebet Hauksdóttir
  • 5. bekkur skólahúsinu við Tjarnarstíg, Ólafsfirði
  • Umsjónarkennari: Sigurlaug Guðjónsdóttir
  • 6. bekkur skólahúsinu við Tjarnarstíg, Ólafsfirði
  • Umsjónarkennari: Sigurlaug Ragna Guðnadóttir
  • 7. bekkur skólahúsinu við Tjarnarstíg, Ólafsfirði
  • Umsjónarkennari: Ólöf María Jóhannesdóttir
  • 8. bekkur skólahúsinu við Hlíðarveg, Siglufirði
  • Umsjónarkennari: Arnheiður Jónsdóttir og Brynhildur R Vilhjálmsdóttir
  • 9. bekkur skólahúsinu við Hlíðarveg, Siglufirði
  • Umsjónarkennari: Margrét Þórðardóttir
  • 10. bekkur skólahúsinu við Hlíðarveg, Siglufirði
  • Umsjónarkennari: Halldóra Elíasdóttir
  • 10. bekkur skólahúsinu við Hlíðarveg, Siglufirði
  • Umsjónarkennari: Róbert Haraldsson